Ljósanótt Logo

Viðburðir

new_icons
Fjölskylduratleikur

Eins og margir vita gerist snilldarsagan um Diddu og dauða köttinn, í gamla bænum í Keflavík. Því verður skemmtilegur ratleikur á Ljósanótt, fyrir alla fjölskylduna, sem byggir á kvikmyndinni.  


Hægt verður að spila reikinn rafrænt í gegnum snjallforritið Actionbound (QR kóði í Bókasafninu) eða fá ratleikinn á pappírsformi í Bókasafninu.  


Finnur þú marga ketti á göngunni? Dettur þú í lýsistunnu?  

Í leiknum er farið á milli stöðva í gamla bænum í Keflavík - á heimaslóðum Diddu. Á hverjum stað er spurt út í söguna, leystar skemmtilegar þrautir og stigum safnað um leið.  Leikurinn byrjar við Norðfjörðsgötu 1 þar sem Didda bjó. Á leiðinni er hægt að telja ketti sem finna má á fjölda staura í hverfinu. Við hvetjum flesta til þess að ganga, skokka eða hjóla.  

Til þess að vinna stig þarf að svara laufléttum spurningum úr sögunni. Þau sem taka þátt geta átt von á vinningi 😊    


Ratleikurinn er ókeypis og öll hjartanlega velkomin að taka þátt.

Dagsetning og tími

Miðvikudagurinn 4. september
09:00 - 18:00
Fimmtudagurinn 5. september
09:00 - 18:00
Föstudagurinn 6. september
09:00 - 18:00
Laugardagurinn 7. september
11:00 - 16:00

Staðsetning

Tjarnargata 12, Bókasafn Reykjanesbæjar, 230

Aðrir viðburðir

Share by: