Á Ljósanótt 2024 verða þrjú fyrirtæki með tívolítæki!
SPRELL – verður með tæki á túninu við stóra sviðið frá fimmtudegi til sunnudags.
TAYOLRS TIVOLI – verður með tæki við hlið gamla SBK hússins í Grófinni frá fimmtudegi til sunnudags.
KASTALAR –
verða með tæki frá fimmtudegi til sunnudags á túninu við Duustorg við enda Vesturgötu og Vesturbrautar.
Kaupa þarf miða hjá hverju fyrirtæki fyrir sig og því gilda EKKI sömu miðar hjá öllum aðilum.
Athygli er vakin á því að frítt verður í hoppukastalaland fyrir yngstu börnin í Skrúðgarðinum í Keflavík á laugardegi og sunnudegi!
Íbúum Reykjanesbæjar býðst að kaupa miða í tívolítæki hjá fyrirtækjunum á tilboðsverði 4. og 5. september!
Sunnudaginn 8. september verða miðar einnig seldir með afslætti hjá Sprell og Taylors.
!SPRELL!
4. september miðvikudagur frá kl. 17-20.
5. september fimmtudagur frá kl. 17-20
Stakur miði verður á 50% afslætti (250kr) þessa tvo daga en eftir það fara þeir í almenna sölu og eru verðin þá eftirfarandi:
Einn miði 500kr
10 miðar 4000kr
20 miðar 7000kr
30 miðar 9000kr
3-4 miðar í hvert tæki og endurgreiðsla ómöguleg.
!TAYLORS TIVOLI!
4. september miðvikudagur frá kl. 17-20.
5. september fimmtudagur frá kl. 14-21.
25% afsláttur af Candyfloss og poppi
Allt innifalið tilboð: 18 spilapeningar, 1 miði í verðlaunaleiki, 1 candyfloss eða poppkorn 10.000kr
20 spilapeningar 8.000kr
Þrír heppnir viðskiptavinir vinna fimm spilapeninga í tækin hjá Taylors.
Einn spilapeningur kostar 500kr utan tilboðsdaga og kostar að lágmarki tvo spilapeninga í hvert tæki.
!KASTALAR!
4. september miðvikudagur frá kl. 15-19
5. september fimmtudagur frá kl. 15-19
Stakur miði verður á 50% afslætti (250kr) þessa tvo daga en eftir það fara þeir í almenna sölu og eru verðin þá eftirfarandi:
Einn miði 500kr
6 miðar 2500kr
10 miðar 4000kr
20 miðar 7000kr
30 miðar + tveir skammtar af popp eða candyfloss = 9500kr
2-4 miðar í hvert tæki.