16.08.11

Sölutjöld á Ljósanótt

Þeir einstaklingar og félagasamtök sem hyggjast vera með sölu á Ljósanótt 2011 eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við umsjónarmann söluplássa Hjörvar Brynjólfsson á netfangið sala@ljosanott.is eða í síma 692-2726 og tilkynna um þátttöku. Leyfilegt er að vera með sölutjöld frá fimmtudegi til sunnudags 1.-4. september.

Greidd er svoköllað „aðstöðuleiga“ fyrir sölupláss og er þá gert ráð fyrir því að salan fari fram á einum stað. Þeir sem hafa fleiri en einn útsölustað greiða aukalega fyrir hverja staðsetningu.
Greiðslur verða að berast í síðasta lagi fyrir hádegi miðvikudaginn 31. ágúst 2011 á reikning Ljósanætur. Áríðandi er að sett sé í tilvísun: sölupláss og nafna leiguliða. Senda skal kvittun úr heimabanka viðkomandi á netfangið: sala@ljosanott.is
Reikningur Ljósanætur er: Kt. 491091-1699 Reikn. Nr 1191-05-404010
Leiguliðar verða að sýna greiðslukvittun áður en þeir setja upp aðstöðu sína og fá rafmagn eða aðra þjónustu. Gegn framvísun greiðslukvittunar verða afhent leyfisbréf sem eiga að vera sýnileg á sölustað. Einnig þurfa að liggja fyrir leyfisbréf frá viðkomandi stofnunum, sé þörf á því.
Þeim sem ekki uppfylla þessi skilyrði verður óheimilt að stunda sölumennsku á hátíðarsvæði Ljósanætur.
Öllum er skylt að fylgja reglum um torgsölu í Reykjanesbæ, leiðbeiningum um „Brunavarnir í samkomutjöldum 71.4 Br.2“ og sækja um öll tilskilin leyfi vegna sölu (t.d. til heilbrigðiseftirlits).
Viljum við benda leiguliðum á að koma með sín eigin slökkvitæki þar sem þau eru ekki  innifalin í leigunni, einnig skulu vera til staðar sjúkrakassar í öllum söluplássum.
Umsjónamaður söluplássa hefur nokkur tjöld til útleigu (6x6 metrar) sem hafa tilskilin leyfi.
Kostnaður við torgsölu og tjaldleigu á Ljósanótt er eftirfarandi:

Aðstöðu/Reita leiga
50.000 kr.
Tjaldaleiga“
1/2 tjald
25.000 kr.
Heilt tjald
45.000 kr.
Borð 170*65 cm
1.000 kr.
Auka rafmagnstengill
1.000 kr.
Umgengnistrygging
15.000 kr.

 
 
 
Hafi söluaðili hugsað sér að notast við eigin aðstöðu skal hann sem fyrst senda stærð grunnflatar aðstöðu sinnar (tjald/bíll/sölubás) á sala@ljosanott.is
Tjald/bíll/sölubás minna en 10 fermetrar:                                                               50.000  Kr.
Tjald/bíll/sölubás stærra en 10 fermetrar                                              Samkomulag eftir stærð.
 
Miðað er við að sala sé í gangi hið minnsta á meðan dagskrá stendur föstudag og laugardag.
Hvert pláss afhendist með einum 10 Amp tengli.
Miðað er við hóflega rafmagnsnotkun (10 Amp / 2200 W).
ATH:
Úttektir tjalda og aðstöðu fara fram á fimmtudeginum 1. sept.
Önnur leyfi vegna sölu á Ljósanótt eru í höndum viðkomandi stofnana.
Íþrótta- og félagasamtökum í Reykjanesbæ og handverksfólki er veittur afsláttur af leigugjöldum.
Umgengnistrygging er hugsuð sem trygging fyrir góðri umgengni um tjöldin/svæðið og endurgreiðist hún fyrir 9. sept til viðkomandi leiguliða hafi hann skilað tjaldinu/svæðinu óskemmdu, hreinu og öllu rusli hafi verið komið í tilheyrandi ruslagáma.
Framkvæmdaráð Ljósanætur
 
Dagskrá
Hljómar, Gamli bærinn minn.
Lag: Gunnar Þórðarson.

» HLUSTA Á INNSEND LÖG
Þú verður að sækja nýjasta Adobe Flash Spilarann til að hlusta á þessa upptöku.